Landsþjónustunefnd

Hlutverk Landsþjónustunefndar (LÞN) er eftirfarandi:

  • Standa vörð um erfðavenjur, hugtök og reynsluspor AA-samtakanna
  • Hafa umsjón með eigum AA-samtakanna
  • Reka skrifstofu í Reykjavík
  • Skipa nefndir sem sinna sérstökum verkefnum innan AA-samtakanna
  • Kalla saman og undirbúa Landsþjónusturáðstefnu

Starfsár Landsþjónustunefndar er frá 1. maí ár hvert og til loka apríl árinu seinna. Miðast það við árlega ráðstefnu AA samtakanna sem haldin er í maí á hverju ári en hefst þá um leið nýtt starfsár.


Landsþjónustunefnd kemur saman mánaðarlega að jafnaði og hefur sú hefð skapast að miða við síðasta mánudag í hverjum mánuði.


Nefndin hittist þó ekki formlega eftir ráðstefnuna, fyrr en í ágúst eða september, eftir sumarleyfi.


Meiri fróðleik um um störf og hlutverk LÞN má finna í þjónustuhandbókinni.