Sérstök fundarform

"Sérhver AA-deild ætti að vera sjálfráða nema í málefnum sem snerta aðrar deildir eða samtökin í heild"

Deildin getur því haldið fundi með hvaða sniði sem henni þykir við hæfi, en algengastir eru:

  • Lokaðir fundir

    Aðeins fyrir alkóhólista. Venjulega óformlegar umræður sem helgaðar eru vandamálum félagsmanna, sporunum tólf og erfðavenjunum tólf. Þetta eru aðallega pontufundir eða hringborðsfundir.

  • Opnir fundir

    Ætlaðir öllum sem hafa áhuga, en að öðru leiti ekkert frábrugðnir lokuðum fundum.



  • Sporafundir

    Þar sem sporin, sem eru grundvallaratriði í bata okkar, eru tekin fyrir og rædd eitt í einu eða fleiri.



  • Ræðumanna- og sögufundir. (Speakerfundir)

    Þar sem framsögumaður segir sögu sína og svarar fyrirspurnum. Hann talar þá í um það bil 45 mínútur.



  • Kynningarfundir

    Ræðumannafundir þar sem lögð er áhersla á að upplýsa almenning um AA-samtökin.

  • Samvisku- og deildarstarfsfundir

    Flestar deildir halda sérstaka fundi nokkrum sinnum á ári, auk fastra funda, þar sem þjónustunefndarmenn skýra félögunum frá störfum og þjónustu, og vandamál innan deildarinnar eru rædd og leyst.

Önnur fundarform

  • Fundir sem merktir eru í fundaskrá með orðunum Konur eða Karlar eru samkvæmt orðanna hljóðan haldnir af og ætlaðir hvoru kyni fyrir sig.
  • Á sama hátt eru fundir merktir LGBT fyrir samkynhneigða.
  • Á Bókarfundi er lesið úr AA-bókinni og tjáning fundarins er þá oftast um það efni sem var lesið. Þessir fundir, þar sem ritað efni AA-samtakanna er tekið fyrir, hafa það að markmiði að lesa í gegnum bækurnar yfir ákveðið tímabil og svo er byrjað að nýju.
  • Fundi sem merktir eru Víkingar halda þeir sem þekkja vel þá vá að hrasa á göngunni til batans.
  • Fundir sem merktir eru með orðinu Nýliðar leggja áherslu á þá ábyrgð að taka vel á móti nýju fólki, sem er jafnvel að koma á sinn fyrsta fund. Það þýðir auðvitað samt ekki að illa sé tekið á móti nýliðum á öðrum fundum! - enda veit sérhver AA maður hvað það getur verið mikil reynsla að koma á sinn fyrsta fund.
  • Sumar deildir halda Erfðavenjufundi, oft með einhverju millibili, t.d. fyrsta eða síðasta fund í mánuði og þá er lesin ein erfðavenja eða á annan hátt minnt á þær.


Það hafa komið fram fleiri fundarform sem hafa fest rætur hér heima, oftast að erlendri fyrirmynd. Má þar nefna:

  • 11. Spors Hugleiðslufundi, en þar hefst fundur með hugleiðslu í anda ellefta sporsins að loknum inngangi og fólk tjáir sig svo yfirleitt í tengslum við það. 
  • PPG Primary Purpose Group, er einnig eitt fundarform, en það eru opnir fundir, þar sem farið er nákvæmlega ofan í AA-bókina og spurningar henni tengdar, en ekki er þar eiginleg tjáning.


Enn fleiri fundarform finnast, enda eru deildir sjálfráða í eigin málum og samviska deildarinnar ákveður hvernig deildin starfar.

"Hvenær sem tveir eða þrír alkóhólistar koma saman í þeim tilgangi að hætta að drekka mega þeir kalla sig AA-deild svo framarlega sem hún tengist ekki öðrum samtökum." (Sporabókin, 2010 bls. 146-147)