Erfðavenjumánuður í nóvember

Til: Allra AA-deilda á Íslandi.


Málefni: Erfðavenjumánuður AA-samtakanna í nóvember.


Nóvember er hefðbundinn erfðavenjumánuður hjá AA-samtökunum. Félagar hafa fagnað þessu tækifæri til að dýpka skilning sinn á erfðavenjunum sem mynda grundvöll samtakanna.


Vinsamlegast lesið upp og kynnið í AA-deildinni:



Eftirfarandi fyrirkomulag hefur reynst vel á fundum í erfðavenjumánuðinum:


  1. Valinn er AA-félagi til að leiða fundinn sem segir frá reynslu sinni og skilningi á erfðavenjunum og hvetur þannig til hugleiðinga um þær. Fjallað er um þrjár erfðavenjur á hverjum fundi, þannig að í lok mánaðarins hafi verið fjallað um allar erfðavenjurnar.
  2. Nota um það bil 30 mínútur af fundartíma til að lesa upp og ræða um þrjár erfðavenjur á hverjum fundi þannig að eftir það sé um venjulegan fund að ræða .
  3. Hafa sérstakan samviskufund eða vinnustofu þar sem farið er yfir þýddar og staðfærðar spurningar um erfðavenjuspurningarnar tólf.


Bill W. samdi spurningarnar fyrir greinaflokk í AA Grapevine á árunum 1969–1971. Þær voru upphaflega ætlaðar einstaklingum en eru nú mikið notaðar af AA-deildum sem grundvöllur umræðna.