Erfðavenjumánuður í nóvember
Til: Allra AA-deilda á Íslandi.
Málefni: Erfðavenjumánuður AA-samtakanna í nóvember.
Nóvember er hefðbundinn erfðavenjumánuður hjá AA-samtökunum. Félagar hafa fagnað þessu tækifæri til að dýpka skilning sinn á erfðavenjunum sem mynda grundvöll samtakanna.
Vinsamlegast lesið upp og kynnið í AA-deildinni:
- Sækja erfðavenjubréfið (.pdf) sem lesið er upp
- Sækja erfðavenjuspurningar (.pdf) sem fylgja með bréfinu.
Eftirfarandi fyrirkomulag hefur reynst vel á fundum í erfðavenjumánuðinum:
- Valinn er AA-félagi til að leiða fundinn sem segir frá reynslu sinni og skilningi á erfðavenjunum og hvetur þannig til hugleiðinga um þær. Fjallað er um þrjár erfðavenjur á hverjum fundi, þannig að í lok mánaðarins hafi verið fjallað um allar erfðavenjurnar.
- Nota um það bil 30 mínútur af fundartíma til að lesa upp og ræða um þrjár erfðavenjur á hverjum fundi þannig að eftir það sé um venjulegan fund að ræða .
- Hafa sérstakan samviskufund eða vinnustofu þar sem farið er yfir þýddar og staðfærðar spurningar um
erfðavenjuspurningarnar tólf.
Bill W. samdi spurningarnar fyrir greinaflokk í AA Grapevine á árunum 1969–1971. Þær voru upphaflega ætlaðar einstaklingum en eru nú mikið notaðar af AA-deildum sem grundvöllur umræðna.