AA samtökin á Íslandi

 
Hin árlega þjónusturáðstefna AA samtakanna á Íslandi verður haldin laugardaginn 8. maí 2010 í Víðistaðaskóla í Hafnarfirði.

Ráðstefnan er eingöngu setin af AA mönnum, en fyrirkomulag okkar á Íslandi er þannig að hver AA deild getur sent einn fulltrúa á ráðstefnuna. Einnig sitja hana landsþjónustumenn, en landsþjónustunefnd heldur ráðstefnuna og svo fulltrúar ýmis annars nefndarstarfs á vegum AA samtakanna, sem eru sendir á vegum sinnar AA deildar. Samkvæmt erfðavenjum AA samtakanna um nafnleynd og vegna sérstöðu samtakanna sitja hana ekki aðrir gestir en að ofan getur. Fundargerðir ráðstefna eru birtar hér annars staðar á heimasíðunni, en nöfnum manna er breytt  þannig að upphafsstafir einir koma í stað nafnsins. Þetta er gert í anda elleftu og tólftu erfðavenju samtakanan um nafnleynd á opinberum vettvangi.

Allar AA deildir á Íslandi fengu sent skráningarblað í febrúar 2010 og þurfa að skila upplýsingum vegna fulltrúa síns fyrir 15. apríl 2010 en þá lýkur skráningu á ráðstefnuna.

Skráðir fulltrúar fá með tölvupósti senda dagskrá og gögn með hæfilegum fyrirvara, en ráðstefnan stendur í einn dag með þéttri dagskrá.

AA samtökin á Íslandi • Tjarnargata 20 • 101 Reykjavík • Sími: 551 2010 • Fax: 562 8814 • Póstfang: aa(hjá)aa.is
© 2007 Uppsetning og hönnun Hýsir.is